DuoHuePack er 22 lítra fartölvubakpoki / skólataska fyrir allt að 15,6″ fartölvur & USB hleðslutengi fyrir snjalltæki
$ 97.78
Taskan er 22 lítra með rúmgóðu rými og er úr vatnsfráhrindandi Oxford efni. Á töskunni eru mörg hólf. Að framan er stór renndur vasi og aftan á töskunni er annar renndur vasi að svipaðri stærð. Á hliðum töskunnar eru vasar sem henta fyrir vatnsbrúsa, regnhlífar o.þ.h. Innan í baki töskunnar er sér hólf fyrir allt að 15,6″ fartölvu, annað hólf fyrir allt að 12,9″ spjaldtölvu og á móti eru tveir vasar annar renndur og hinn opinn. Á annari hliðinni er USB-A og USB-C hleðslutengi sem tengt er við hleðslubanka ofan í töskunni og því hægt að hlaða fartölvuna og snjallsímann þegar þess er þörf. Taskan hentar einstaklega vel sem skólataska því hún er létt, rúmgóð og úr vatnsfráhrindandi efni. – Stærð: 45 x 32 x 15 cm (22 lítrar) – Litur: Grár og hvítur – Efni: Oxford 600D (vatnsfráhrindandi) – Þyngd: 0,6 kg

The Deformable II er 32,5 lítra helgartaska með stóru aðalhólfi & sér hólfi með loftun fyrir skóbúnað
Minimalism I er stækkanlegur bakpoki fyrir daglega notkun
Muke III er stílhrein & glæsileg fartölvutaska sem fær fólk til að snúa höfðinu